|
Fiskistofa var sett á stofn árið 1992. Þá færðust á eina hendi ýmis verkefni sem sjávarútvegsráðuneytið og nokkrar aðrar stofnanir höfðu áður annast.
Fiskistofa heyrir undir sjávarútvegsráðherra og framfylgir stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi veiðar og vinnslu sjávarfangs.
Stofnunin annast framkvæmd laga um stjórn fiskveiða, hefur eftirlit með fiskveiðum og sér um söfnun, úrvinnslu og dreifingu upplýsinga varðandi fiskveiðar og vinnslu afla.
Þá framfylgir Fiskistofa lögum um meðferð sjávarafurða, hefur eftirlit með framleiðslu þeirra og tryggir að framleiðendur og útflytjendur íslenskra sjávarafurða fari að opinberum kröfum til verndar neytendum.
Nokkur mikilvæg verkefni Fiskistofu eru eftirfarandi:
- Útgáfa veiðileyfa og úthlutun aflaheimilda
- Millifærslur aflaheimilda
- Útgáfa vinnsluleyfa
Slóðin inn á Fiskistofu er: fiskistofa.is
|
|
- Söfnun og miðlun upplýsinga um veiðar og vinnslu sjávarafla
- Eftirlit með veiðum og vinnslu sjávarafla
- Eftirlit með vigtun og skráningu afla
- Eftirlit með innflutningi sjávarafurða
- Álagning gjalds vegna ólögmæts sjávarafla
- Útgáfa heilbrigðisvottorða
Af rúmlega níutíu starfsmönnum Fiskistofu, starfa um fjörutíu starfsmenn við eftirlitsstörf á vettvangi. Starfsfólk Fiskistofu býr yfir margvíslegri reynslu, menntun og sérþekkingu á sjávarútvegi.
Höfuðstöðvar Fiskistofu eru í Hafnarfirði en útibú eru á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Auk þess starfrækir Fiskistofa landamærastöðvar fyrir innflutning sjávarafurða á eftirtöldum stöðum:
- - Reykjavík
- - Hafnarfirði
- - Keflavíkurflugvelli
- - Þorlákshöfn
- - Ísafirði
- - Akureyri
- - Húsavík
|